30 September 2013

Lífið


Þessar myndir eru þær fyrstu sem við áttum hvort að öðru. Hörður með sitt síða og mikla hár.
P.s Gleymdi að nefna að myndin af mér er úr sama partý-i og þegar við hittumst fyrst.

Í gær voru 6 ár síðan ég hitti fallega eiginmanninn minn fyrst. Það var á skemmtistaðnum Yello í keflavík þar sem ég sá þennan bráð myndarlega pilt með þetta svakalega mikla hár. Það var í rauninni ekki fyrsta skiptið sem ég sá hann. Við hittumst fyrst í partý-i þar sem Hörður byrjaði á að tala við mig. Hann hitti svo illa á að spurja mig um afhverju systir mín og hennar fyrrverandi hafi hætt saman. Á þessum tíma fékk ég þessa spurningu nokkuð oft á dag og var orðin virkilega þreytt á því. Svo ég svaraði honum frekar pirruð hvort hann vildi ekki bara spurja hana sjálfur af því og rétti honum síman með númerinu hjá Helgu. Hann hringir og talar við hana og þar með enda samskipti okkar.

Svo ári seinna hittumst við aftur og þá á Yello. Ég var þá með Helgu systir á leiðinni heim þegar strákur spyr hvað okkur finnst um þetta síða hár á honum Herði? Ég svara að það sé nú full sítt og sest hliðiná honum. Byrjum að spjalla sem endar með því að Hörður fær númerið mitt. Þetta var 29.09.07 og við höfum verið saman síðan.

Í dag erum við svo hamingjusamlega gift!  Ég tel mig vera einstaklega heppin með eiginmann og að hafa farið út að skemmta mér þetta kvöld. Ég þakka fyrir á hverjum degi að eiga jafn traustan, góðan og fallegan mann. Það er alls ekki sjálfgefið.

Með þér mér við hlið hef ég engar áhyggjur af framtíðinni. 
 

3 comments:

  1. Þetta er svolítið skemmtileg saga. Gleymi þessu seint :)

    ReplyDelete
  2. Þetta er svolítið skemmtileg saga. Gleymi þessu seint :)

    ReplyDelete
  3. Já þú átt nokkurn part í þessu með okkur! ;)

    ReplyDelete