25 March 2012

Helgin

Helgin mín var ótrúlega notaleg. MBC vann heimaleik á föstudaginn þar sem Hörður var með 14 stig og svo voru þeir að vinna annan leik rétt í þessu þar sem hann var með 10 stig og 4 fráköst. Hann er að standa sig svo ótrúlega vel og er ég svo ánægð að fá að upplifa þetta ævintýri með honum.

Sólin er aldeilis búin að láta sjá sig. Ég er búin að vera nánast úti á svölum um helgina. Þakka fyrir að vera með svalir í svona veðri og fallega rauða sólbekkinn minn.

Vonandi var ykkar helgi jafn góð og mín!

No comments:

Post a Comment