18 March 2012

Yndisleg helgi

Hörður og félagar í MBC byrjuðu helgina á að vinna deildina! Fengu tveggja daga frí að launum. Erum búin að njóta lífsins með vinum í sólinni um helgina. Sólbað á svölunum, mini golf, mini rússibani, takeaway og kíkt á lífið í leipzig þar sem hann Hörður minn varð game over eins og hann sagði og komst ekki á blessað ballið!! Svona þegar vín er sjaldan drukkið þá er þolið fyrir áfenginu eitthvað minna.

Í kvöld verður svo haldið áfram að plana stóra daginn sem er eftir rétt rúma fjóra mánuði!!
Tíminn flýgur þegar það er gaman ekki satt?

Vonandi var ykkar helgi jafn notaleg og mín elsku vinir.
Xx

No comments:

Post a Comment