06 December 2013

Trefill




Sama dag og ég átti flug til Íslands var virkilega gott veður hérna á Spáni. Þar sem það var Nóvember vissi ég að það væri ekki jafn fínt veðrið heima svo ég kom við í Primark og Zara. Þessi ofur kósý trefill beið eftir mér við búðarborðið. Aðeins einn trefill sjáanlegur og ég var ekki lengi að taka hann með mér ásamt hlýjum sokkum!

Trefillinn er virkilega stór og góður. Ég hef notað hann nokkrum sinnum sem teppi þegar ég hef verið að læra.

Fyrir áhugasama þá er hægt að nálgast trefilinn hérna.

No comments:

Post a Comment