29 July 2013

Afmæli!


Ég átti afmæli á föstudaginn og er svo heppin að vera fædd sama dag og einn af fyndnustu mönnum þjóðarinnar honum Rúnna frænda. Rúnni varð 50. ára á  en ég ekki nema 23. Af þessum merka áfanga var haldin stórveisla! Þvílíkt og annað eins fjör. Við frænkurnar köllum okkur Stellurnar og vorum með þetta flotta atriði handa Rúnna. Söngur og dans! Say no more...

Við Hörður fögnuðum svo því í gær að búin að vera gift í eitt ár. Fórum ásamt Helgu og Teit og fengum okkur dýrindis mat á Tapas Barnum! Nammi hvað þetta er gott. Ég fékk mér kjúkling og humarhala og Hörður fékk sér naut og humarhala. Mæli svo sannarlega með þessum stað.


Vil þakka eiginmanni mínum fyrir yndislegt ár saman. Það eru sko forréttindi að fá að vera svona vel gift. Það að vakna brosandi á hverjum degi er ekki sjálfgefið. Mikið vona ég að næstu ár verða jafn skemmtilegt. Með þér við hlið hef ég engar áhyggjur af framtíðinni.





No comments:

Post a Comment