10 May 2013




Við hjónin skruppum í smá frí til spánar og vorum að koma til þýskalands í dag. Seinasta vika var bara nokkuð ljúf í hitanum og sólinni sem var svalað með ísköldum mojito! Nú taka nokkrir dagar við hérna í Weissenfels þar sem við þurfum að pakka dótinu okkar saman þar sem tímabilið hjá Herði er búið og eyða sumrinu heima á íslandi. Ég get ekki beðið eftir að komast heim.. hitta fjölskylduna, vinina, fara uppí bústað, brúðkaup og eiga yndislegar íslenskar sumarnætur með fólkinu mínu! Ætla að reyna að henda inn nokkrum færslum í fríinu, smá ferðasögu og svo á ég alltaf eftir að klára skrifin með brúðkaupið okkar ef það mun gagnast verðandi brúðhjónum. 

-Hafdís 

1 comment: