07 March 2013

Veðrið




Ótrúlegt hvað veðrið getur haft mikil áhrif á allt saman. Við vorum mjög heppin í fyrra og það kom eiginlega enginn vetur en núna er búið að vera mun kaldara og meiri snjór! Í gær sýndi síminn loksins 15 gráður og sól! Ohh hvað ég elska gott veður. Við nýttum daginn í að fara á kaffihús og röltum um Leipzig í góða veðrinu. Ég reyndi að fara í nokkrar búðir en með tveimur strákum er það ekki hægt!
...Hefði átt að skilja þá eftir á Starbucks þar sem Kelly er ekki með þýskt net, eru þeir virkilega ánægðir að ná wifi-inu þar og var frekar erfitt að ná þeim þaðan út!

Vonandi er sumarið handan við hornið...



3 comments:

  1. jæks hvað ég er abbó - ég vil svona veður!

    ReplyDelete
  2. Já ég held að ég hafi verið of fljót á mér! Það er spá smá snjó og kulda í næstu viku!! Svo nú er ég með alla putta krossaða að sú spá sé vitlaus ;)

    ReplyDelete