08 March 2013

Apple TV



Apple Tv er algjör snilld! Við elskum apple og eigum flestar vörunar frá þeim. Það var alltaf verið að benda okkur á að kaupa þetta tæki en við vorum ekki alveg viss með notagildið. Það sem apple TV gerir er að þú getur streamað allt frá öllum Apple vörum beint í sjónvarpið. Svo er hægt að tengast netflix eða Hulu í gegnum þetta undratæki og þá ertu komin með bíómyndir og þætti fyrir um 8 dollara á mánuði (ef þú ert löghlýðin eins og við). Það sem við erum líka hrikalega sátt með er hvað tækið er lítið. Þegar lífið er í ferðatöskum þá er sko spáð í því hvað hluturinn sem verið er að kaupa taki mikið pláss í þeim! Svona við fyrstu kynni þá er þessi græja sko vel þess virði.

Þessa færslu var ég búin að skrifa upp í gær en gleymdi að birta hana. Þegar Hörður kemur svo heim af æfingu, var maturinn í ofninum og ég bað hann um að fylgjast með matnum þar sem ég ætlaði að reyna læra aðeins á meðan. Þegar ég kem svo fram er Hörður búin að stilla Apple Tv á þannig að síminn hans er að sýna einn leik frá íslensku deildinni og svo var hann með annan leik á tölvunni. Þegar hann sá mig koma inn í stofu lét hann mig vita að það væri 3 leikurinn í gangi ef ég væri ekki að nota tölvuna mína! Talandi um að vera körfuboltasjúklingur!!


No comments:

Post a Comment