Apríl er forvarnar mánuður gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum í heiminum. Blátt Áfram tekur þátt í að reyna að vekja almenning um mikilvægi þess að við fræðum börnin okkar. Staðreyndirnar sýna okkur að gerendurnir forðast vel upplýst börn. Það er því okkar besta vopn sem við höfum er að upplýsa og fræða bæði okkur sjálf sem og börnin okkar. Við erum ekki aðeins að forða börnunum okkar frá því að lenda í slíkri misnotkun heldur erum við einnig að fækka gerendum í leiðinni. Því jú allir gerendur eiga foreldra eða forráðamenn sem sjá um að fræða þá. Sé þessi hópur fólks betur upplýst og vita meira um afleiðingar ofbeldis getum við í mörgum tilfellum hjálpað þessum einstaklingum áður en skaðinn er skeður. Við sem fullorðnir einstaklingar getum haft gríðarleg áhrif ef við bara viljum.
Það er nefnilega á okkar ábyrgð að börnin í heiminum séu örugg. Hjálpumst að við að minnka tölfræðina í þessum málaflokk. Við getum það ef við erum samstillt allt árið ekki bara þegar það er átak í gangi!
Við erum sterkari saman.
No comments:
Post a Comment