10 April 2012

Páskar

Búin að eiga yndislega páska. Fengun Hjalta& Telmu til okkar á föstudaginn með páskaegg, brúðarblaðið frá nýju lífi og fleirra íslenskt. MBC unnu svo 3 leiki um helgina og eru komnir í 4. Liða úrslit!!
Í gær á leiðinni á flugvöllinn með Hjalta og Telmu tókum við Hörður skemmtilega skyndiákvörðun og pöntuðum okkur hótel& spa í verðlaun. Mikið var það notalegt að þurfa ekki að keyra heim og fá frídag í Berlín sem er svo ótrúlega falleg. Röltum um göturnar gerðum, góð kaup og síðast en alls ekki síst slökuðum á í spainu á hótelinu. Þar sem Hörður er búin að vera með leiðinda pest og kinnholbólgur var sauna að gera kraftaverk svo strákurinn er tilbúin í úrslitin :)
Semsagt yndislegir páskar og fyrsta páskamáltíðin heppnaðist líka svona vel!!
Í verðlaun frá liðinu fengum við svo flatskjá og var Hörður fljótur að fara að kaupa playstation move! Svo núna er búið að breyta stofunni í gym! Greyið nágranninn!!

Farinn að hreyfa á mér rassinn!!

2 comments:

  1. Snilld! Þið eruð rosaleg í þessum skyndiákvörðunum!
    Hlakka rosa að fá að prófa gymmið þitt ljúfan!
    Risa knús elskan:*

    Halldór saknar Höskuldar síns, þú kannski skilar því!

    ReplyDelete
  2. Skyndiákvarðanir eru algjörlega okkar fag!! Knús á ykkur fallega fjölskylda.
    Söknuðurinn er kominn til skila :) sama hérna hlökkum ótrúlega til að hitta ykkur.

    ReplyDelete