21 November 2012




Smá ferðasaga! Ferðin seinustu helgi gekk bara nokkuð vel. Við ákváðum að leggja af stað frekar snemma þar sem það er verið að laga mikið hraðbrautina núna sem við þurftum að fara á. Það var svo alls enginn traffík svo við vorum komnar til Bayeruth á góðum tíma og náðum að fá okkur drykk fyrir leikinn. Ég er með æði fyrir mojito núna, helst með engu áfengi og extra sykri! Það hafa held ég allir þjónar farið að hlæja af mér þegar ég set fram þessa kröfu!
Leikurinn gekk ekki svo vel, til að byrja með gátum við 4 ekki setið saman. Við vorum tvær sem fengum VIP miða þar sem við vorum akkurat hinu megin í höllinni en hinar tvær. Það hafði greinilega áhrif á leikinn þar sem þeir töpuðu með cirka 15 stigum og komust aldrei inní leikinn. Það var samt ótrúlega gaman að fara með stelpunum á leikinn þrátt fyrir tap!


No comments:

Post a Comment