Eins og svo margir aðrir elska ég að lesa blogg. Sem var megin ástæðan að ég ákvað að byrja blogga þegar við fluttum út. Ég elska að finna ný blogg og lesa þau út í gegn.
Skemmtilegustu bloggin mín eru þau sem eru vel skrifuð, nóg af myndun og persónuleg. Stundum finnst mér ég þekkja orðið manneskjuna á bakvið bloggið nokkuð vel en myndi líklega ekki heilsa henni útá götu! Pínu skrítið.
Ég ætla reyna að byrja blogga oftar er eitthvað sem þú lesandi góður vilt fá meira af? Myndir? Brúðkaup? Persónulegt? Endilega kommentaðu og láttu mig vita.( elska að fá komment)
Endilega segðu mér frá uppáhalds bloggunum þínum :)
held að flest blogg sem ég skoða eru í tenglum á síðunni minni - finnst að fleiri ættu að hafa svoleiðis því þar finnur maður bloggin :)
ReplyDeleteKv. Sólveig
soskars.123.is
Þú mátt endilega skrifa um brúðkaupspælingar. Er líka að fara að gifta mig í ár :)
ReplyDeleteBúin að setja upp smá tengla á eftir að setja fleirri inn.
ReplyDeleteEn gaman anonymous skal setja inn brúðkaupsblogg. Er einmitt á fullu að plana núna :)