24 April 2012

2007

 
Byrjaði ævintýrið....
Ég fór á körfuboltaleik í laugardagshöllinni á leik meistarar meistaranna í september árið 2007. Var ekki vön að fara á alla leiki með Njarðvík og veit ekki afhverju ég fór á þennan leik með systrum mínum. Í bílnum á leiðinni heim spyr ég Helgu systir hver þessi nýji leikmaður sé? Hún segir að hann sé frá Fjölni og var að koma heim frá Ítalíu. Ég sendi vinkonu minni henni Helenu að ég hafi séð ótrúlega sætan strák á leiknum sem sé að spila með Njarðvík. Meira pældi ég ekki í því.

 Nokkrum helgum seinna er ég ásamt Helgu systir og Helenu niðrí bæ. Enn og aftur tilviljun að ég sé með Helgu þar sem við vorum ekki vanar að hanga saman á þessum tíma. Það er komin morgun og er verið að loka staðnum bráðlega, við Helga erum að fara út þegar strákur kippir í mig og spyr hvað mér finnst um hárið á vini hans. Við Helga svörum báðar að það sé alltof sítt og hann þurfi nú að fara í klippingu drengurinn. Við setjumst hjá strákunum og byrjum að spjalla. Þegar við Helga erum að fara spyr þessi með mikla dökka hárið um númerið mitt. Hann spyr hvort ég sé nokkuð að gefa honum upp vitlaust númer sem ég gerði nú ekki! 
Það er komin miðvikudagur og ekkert sms er komið. Ég spyr Helenu hvort ég eigi ekki að senda honum bara, þeir sem þekkja mig vita að ég er með enga þolinmæði og get ekki beðið eftir neinu. Ég fæ númerið í gegnum sameiginlegan vin og sendi honum. Honum bregður við að ég hafi sent fyrst en hefur sagt mér síðar að þegar hann fékk sms frá mér vissi hann að það væri eitthvað varið í mig, fyrst ég hafði þorað að senda fyrst. En mér hefur aldrei líkað þessi leikur sem svo margir vilja leika með 100 reglum um hvað má og hvað má ekki og þar sem stelpan má alls ekki senda fyrst!! Hann hafi nefnilega viljað bíða í einn dag í viðbót til að ekki vera ekki desperate!!

 Síðan eru liðin næstum 5 ár, hamingja, grátur, meiri hlátur, skemmtileg ferðalög og hellingur af  fluttningum. Endalaus ást, hamingja og virðing. Án stráksins með mikla dökka hárið gæti ég ekki séð líf mitt án og höfum við því ákveðið að stíga það skref að gifta okkkur núna í sumar. 
Svo núna er það skipulag,skipulag og skemmtun!


 






1 comment:

  1. Skemmtileg saga :) Þið verðið ekkert smá flott hjón!

    ReplyDelete