28 January 2012

HAV

Hann Hörður minn heldur áfram að sýna mér hversu ótrúlegur hann er. Hann hefur talað um það í smá tíma að halda einstaklingsbúðir næsta sumar. Um daginn setti hann upp síðu tengda búðunum og einnig sem hann ætlar að tala um heilsu, næringu og auðvita körfuboltann. Hann fékk ótrúlegar viðtökur og eru 3.000 manns búnir að heimsækja síðuna á aðeins nokkrum dögum.
Eg get ekki lýst því hvað ég er stolt af honum. Allt sem hann tekur sér fyrir hendur gerir hann 100%. Vinnan sem hann hefur lagt á sig til að ná þar sem hann er í dag er ótrúleg og hann er alls ekki hættur. Ég dáist alla daga af sjálfsaganum, dugnaðinum og endalausri trú sem hann hefur. 
 Betri fyrirmynd er ekki hægt að finna utan sem innan vallar!!






No comments:

Post a Comment