07 October 2013

Skólastofa-dagsins





Skólastofa dagsins er þetta ofur krúttlega kaffihús. Við erum loksins flutt og það tekur allt sinn tíma hérna og það að fá netið er eitt af því!( Ég gaf upp vitlaust heimilisfang svo ég á þátt í þessari seinkunn!!) Ég held reyndar að það sé ágætt að fara út stundum að læra þá er ekkert að trufla mann heima. En þegar ég er að fara í lokapróf á föstudaginn og mánudaginn þá vil ég vera heima í næði að lesa og gera gömul próf. Ekki á kaffihúsi með tónlist í gangi. Þetta er allt saman partur af þessu lífi sem ég vel svo ég verð að taka því og vera jákvæð! Þetta er betra en ekkert net! Og tónlistinn er sem betur fer góð. 

No comments:

Post a Comment