01 March 2013

Helgin







Takk fyrir falleg komment í blogginu hér að neðan. Ég hef oft velt því fyrir mér afhverju ég er að blogga, en ég sætti mig svo alltaf við það að það er ekki til að fá komment. Þó það er alltaf gaman að sjá að það er verið að skoða og eitt og eitt like gleðja mig ótrúlega mikið! En það að bloggið mitt er að hjálpa öðrum skiptir mig mestu og aðal máli, þá er markmiðinu náð!

Helgin mín mun innihalda aðalega lærdóm með góðum pásum, ásamt því að hvetja eiginmanninn áfram á vellinum á morgun! Það er alltaf svo gaman þegar það er heimleikur. Við fáum oftast frídag daginn eftir leik og oftast er það sunnudagur. Þjóðverjar eru svo skemmtilegir að þeir loka ÖLLU á sunnudögum, en um helgina er opin sunnudagur! WOOP WOOP! Svo vonandi frúin verði dugleg að læra svo hægt sé að nýta sér opin sunnudag!

Njótið helgarinnar elsku vinir með þeim sem ykkur þykir vænt um!

-Hafdís 

No comments:

Post a Comment