19 March 2013
Hár!
Ég elska fallegt hár! Ég hef undafarin ár verið að reyna safna mínu og það gengur ágætlega. Það sem ég hef þó ekki náð að gera er að finna hinn fullkomna lit fyrir blessað hárið! Ég held að ég hafi aldrei verið 100% ánægð þegar ég kem úr klippingu og litun. Þegar ég flutti út treysti ég alls ekki þjóðverjunum og þá aðalega þar sem ég tala ekki þýsku. Ég keypti mér til að byrja með sprey sem á að lýsa hárið þegar ég var að fá rót en það dugði ekki lengi.
Ég prófaði svo í fyrsta skitpi í fyrra að lita það sjálf. Það gekk bara nokkuð vel og ég held að ég hafi verið hvað ánægðust þegar ég geri það sjálf! Undafarna mánuði hef ég gert þetta sjálf og ekkert mál, en þar sem ég er ekkert lærð þá held ég að það þurfi að fara á stofu svona á milli og lita það sem ég sé ekki og jafna hárið. Ég fór því í dag og var með blöndu skrifaða niður það sem ég vildi. Það verður bara aldrei eins og ég vill hafa það!
Ég hugsa alltaf eftir hvert sumar þegar sólin er búin að fá að skína í það að nú ætli ég að hætta að lita það, því ég held að það verði heilbrigðara og fallegra. Þegar rótin er hins vegar komin vel niður og ég lít út eins og ég veit ekki hvað þá er ég alltof fljót að skella smá lit í það! Svo langar mig líka alltaf að verða ljóshærð aftur þegar ég lita það nær mínum lit! Svo þetta er orðið eins og ein hringjavitleysa!
Annars finnst mér hárið hennar Jennifer ótrúlega flott en fæ þetta ekki til að virka á kollinum á mér!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Oh sama hér, það kostar annan handlegg að fara í klipp+lit hérna í svíþjóð og ég er aldrei ánægð, núna er ég einmitt að spá í að prófa að gera þetta sjálf! Hvaða lit ert þú að nota?
ReplyDeleteÞjóðverjar eru voðalega litglaðir hérna þar sem ég er! Í stórmörkuðunum er því hellingur til af litum til að gera þetta sjálfur.
ReplyDeleteÉg hef verið að prófa mig áfram og finnst þægilegast að nota, maska eða froðu. Það er auðvelt að bera það í hárið og þú sérð auðveldlega hvar er komið og ekki. Svo er gott að hafa spegil til að sjá aftan á hárið svo það komi ekki skellur eða blettir sem gleymast! Ég var greinilega að mikla þetta mikið fyrir mér að gera þetta sjálf þar sem ég er svo ljóshærð, en það hefur aldrei (7-9-13) endað gult!
Það sem ég hef verið að prófa er frá garnier, Schwarzkopf og svo er eitt annað merki sem ég man ekki nafnið á sem er með hármaska.
Endilega sendu á mig ef þú ert í vandræðum! Gangi þér annars vel og ég hlakka til að sjá hvernig gengur.