19 February 2013

Lífið




Loksins áttu við hjónin sameiginlegan frídag í gær og nýttum daginn vel saman. Við erum vön að eiga allaveganna einn dag í viku þar sem við gerum eitthvað saman og eigum þá smá frí frá daglega lífinu. Undafarnar vikur hafa því miður ekki boðið uppá það. Ég þurfti að fara til íslands í viku í endann janúar og þegar ég kem tilbaka tekur lærdómur fyrir prófin við. Hörður er svo á sama tíma að spila þrjá leiki á einni viku! Svo í gær kláraði ég prófin mín og Hörður átti loksins frí í heilan dag!
Við fórum saman til Leipzig að skoða mannlífið, á kaffihús, í búðir og út að borða þar sem það var meira að segja fengið sér drykki. Beyonce var svo sett í tækið þegar heim var komið og úff! Þessi konar virkar svo svakalega heilsteypt og með sitt á hreinu! Svo sannarlega mikil fyrirmynd. 

No comments:

Post a Comment