01 December 2012









Ég lét verða af því að fara í klippingu og litun hérna úti. Það er ekki að  það sé svo dýrt að fara í litun hérna heldur var ég ekki beint að þora því. Í bænum sem ég bý í er nefnilega í tísku að vera með rautt, blátt eða annan skemmtilegan lit í hárinu. Ég fór því til Leipzig i gær í von um að enda ekki með gult hár eða verra. Svo tala ég því miður ekki málið hérna vel svo ég var ansi hrædd um að vera misskilin og enda með bláan topp. Allt gekk þó vel, en sem betur fer var ég ekki að flýta mér þar sem þetta tók rúmlega 4 klukkutíma! Ég hélt að gæjinn ætlaði aldrei að klára á mér hausinn! Stofan sem ég fór á er ný stofa í Leipzig og ótrúlega flott. Sófinn á myndinni hér að ofan er to die for! Úff hvað hann er flottur. 


No comments:

Post a Comment