04 September 2012

Ræktin

Líkamsræktarstöðin sem ég hef aðgang að er svo ótrúlega kósý að stundum er það ástæðan að ég fer í ræktina. Konan sem á stöðina talar sem betur fer ensku og er meira að segja með orðabók hjá sér svo ég skilji örugglega allt. Hún er svo mikið krútt að það hálfa væri helling!! Það er sérstök aðstaða þar sem tvær saunur eru, bekkir til að hvíla sig og blöð til að lesa. Þegar ég kom fór hún að kaupa blöð á ensku! Núna þegar ég kom er búið að gera svalirnar sem eru útfrá hvíldarherberginu ekkert smá kósý! Stalst til að taka nokkrar myndir.

Annars er ræktin sjálf mjög fín, frekar mikið um tæki en það þarf að vera með sitt eigið kort í og er hver og einn með sitt prógram inná þessu korti frá einkaþjálfara! Hversu sniðugt.

Var ég búin að taka það fram að ræktin er bara fyrir konur!! Sem er ekkert nema schnilld!

No comments:

Post a Comment